Persónuvernd

Samkaup er leiðandi fyrirtæki í viðskiptaháttum, vörugæðum og þjónustu. Gildi Samkaupa, Kaupmennska, Áræðni og Sveigjanleiki, eru leiðarljós í starfi starfsmanna og stjórnenda Samkaupa. Allar ákvarðanir er varða vinnslu persónuupplýsinga hjá Samkaupum eru teknar af lykilstjórnendum og stjórn fyrirtækisins með aðstoð ráðgjafa á sviðum persónuverndarmála.

 

Persónuverndarstefna Samkaupa

Með persónuverndaryfirlýsingu þessari er greint frá því hvernig Samkaup hf., kt. 571298-3769, Krossmóa 4, 260 Reykjanesbæ og dótturfyrirtæki (hér eftir „Samkaup“) standa að vinnslu, s.s. söfnun, skráningu, vistun og miðlun persónugreinanlegra upplýsinga um einstaklinga (hér eftir einnig „þú“).

Yfirlýsingin fjallar einkum um vinnslu persónuupplýsinga þegar einstaklingar:

Hafa samband við fyrirtækið, hvort sem það er í gegnum tölvupóst, síma eða samfélagsmiðla. Heimsækja heimasíðu okkar, www.samkaup.is. skrá sig á póstlista okkar, nýta sér netverslun dótturfyrirtækja okkar.

Samkaup vinnur persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf á Íslandi á hverjum tíma, sem og viðkomandi gerðir samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.

Samkaup leggja mikla áherslu á að virða réttindi einstaklinga og að öll meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi regluverk á hverjum tíma, sem í samræmi við bestu bestu venjur í verslunarrekstri. Meginstefna Samkaupa er ávallt að aðgangur að persónuupplýsingum sé einungis veittur þeim sem þurfi slíkan aðgang.

Að neðan er listi yfir atriði sem einkum getur þurft að upplýsa skráða einstaklinga um í tengslum við rafræna vöktun. Vakin er athygli á því að við sérstakar aðstæður getur þurft að upplýsa um fleiri atriði tengd slíkri vinnslu, sbr. nánar upptalningu í 13. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679.

Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er: Samkaup hf Króssmóa 4 samkaup@samkaup.is

 

  • Tilgangur vöktunarinnar: Í öryggis- og eignavörsluskyni
  • Heimild til vinnslu: Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna Samkaupa hf af öryggis- og eignavörslu. Sjá nánar umfjöllun um vinnsluheimildir á vefsíðu Persónuverndar
  • Tegundir persónuupplýsinga: Unnið er með myndefni sem verður til við vöktunina þar sem sjá má einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra
  • Viðtakendur: Allt myndefni er aðgengilegt vinnsluaðilanum sem hefur umsjón með framkvæmd vöktunarinnar. Efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað getur jafnframt verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið afhent tryggingafélagi sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls. Sjá að öðru leyti 5. og 10. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun
  • Varðveislutími myndefnis: Myndefni er varðveitt í 30 daga og er síðan eytt. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Ef myndefni er afhent lögreglu er öðrum eintökum af efninu eytt. Sjá að öðru leyti 2. tölul. 2. mgr. 5. gr. og 11. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
  • Réttindi einstaklinga: Þú átt rétt á að skoða myndefni þar sem þú sést. Einnig áttu rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.
  • Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd: Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.

Samkaup leggja áherslu á að vinna einungis þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru í samræmi við þann tilgang sem liggur að baki söfnun upplýsinganna. Samkaup vinna persónuupplýsingar ekki frekar í óskyldum tilgangi nema einstaklingi sé tilkynnt um slíkt og þá heimild sem vinnslan byggist á.

Samkaup safna, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi persónuupplýsingum:

  • auðkennis- og samskiptaupplýsingum, s.s. nafni, tölvupósti og kennitölu t.d. í tengslum við útgáfu afsláttarkorta og skráningu í kaupfélag vegna afsláttarkjara
  • tæknilegum upplýsingum, s.s. IP tölu
  • stafrænum fótsporum, s.s. nethegðun
  • upplýsingum í tengslum við val á markaðssetningu
  • myndefni úr upptökum eftirlitsmyndavéla í verslunum
  • upplýsingum um viðskiptasögu

Samkaup vinna persónuupplýsingar einkum í þeim tilgangi að:

  • stunda markaðssetningu og framkvæma greiningar
  • sinna eigna- og öryggisvörslu, t.a.m. í gegnum eftirlitsmyndavélar
  • bregðast við fyrirspurnum, kvörtunum og hrósi frá einstaklingum
  • afgreiða beiðnir í tengslum við netverslun
  • uppfylla lagaskyldu sem hvílir á fyrirtækinu

Þegar þú notar heimasíðuna okkar www.samkaup.is söfnum við upplýsingum um notkun þína, þ.e. IP tölu, tegund eða útgáfu vafra sem þú notar, tímasetningu og tímalengd heimsóknar og hvaða undirsíður þú heimsækir innan heimasíðu Samkaupa. Hér má finna nánari upplýsingar um notkun okkar á vafraökum (e. cookies)

Samkaup safna og vinna persónuupplýsingar byggt á eftirfarandi heimildum:

  • Til að uppfylla samningsskyldu. Þessi heimild á einkum við þegar viðskiptavinir skrá sig í kaupfélag vegna afsláttarkjara eða eru með viðskipti í reikningi.
  • Til að uppfylla lagaskyldu. Þessi heimild á einkum við í tengslum við gögn sem falla undir bókhaldslög.
  • Til að vernda lögmæta hagsmuni félagsins. Þessi heimild á einkum við í tengslum við myndavélaeftirlit í verslunum í eigna- og öryggisvörsluskyni, ásamt innheimtu vanskilakrafna.
  • Á grundvelli veitts samþykkis. Þessi heimild á einkum við í tengslum við markaðsefni sem við sendum einstaklingum sem veitt hafa samþykki sitt fyrir slíku. Einstaklingum er ávallt heimilt að draga samþykki sitt til baka, en einstaklingar geta afskráð sig af póstlista með því að smella á hlekk sem finna má neðst í slíkum póstum. Afturköllun samþykkis hefur þó ekki áhrif á vinnslu sem átti sér stað á meðan samþykki var til staðar.
  • Við söfnum persónuupplýsingum frá þér, og í vissum tilvikum frá utanaðkomandi aðilum á borð við þjóðskrá.
  • Samkaup geymir persónuupplýsingar í þann tíma sem nauðsynlegur er til að uppfylla tilgang vinnslunnar eins og greint er frá honum hér að ofan. Sem dæmi er þeim upplýsingum sem verða til í gegnum myndavélaeftirlit eytt eftir þrjú ár. Þær upplýsingar sem teljast til bókhaldsgagna geymdar í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum nr. 145/1994.

Samkaup selja ekki undir neinum kringumstæðum persónuupplýsingar um þig. Samkaup miðlar einungis persónuupplýsingum til þriðju aðila þar sem sem slíkt er skylt samkvæmt lögum eða ef um er að ræða þjónustuveitanda, umboðsmann eða verktaka sem ráðinn er af hálfu Samkaupa til þess að vinna fyrirfram ákveðna vinnu. Sem dæmi má nefna aðila sem sjá um:

  • að framkvæma greiningar og senda markaðsauglýsingar
  • upplýsingatækni- og fjarskiptaþjónustu

Teljist aðili sem Samkaup miðlar persónuupplýsingum til vera vinnsluaðili gera Samkaup vinnslusamning við viðkomandi aðila. Vinnslusamningar kveða meðal annars á um skyldu vinnsluaðila til að halda persónuupplýsingum öruggum og að nota þær ekki í öðrum tilgangi. Samkaup deila einnig persónuupplýsingum með þriðju aðilum þegar slíkt er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni fyrirtækisins, eins og við innheimtu á vanskilakröfu.

Persónuverndaryfirlýsing Samkaupa nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðju aðila en við höfum enga stjórn á né berum ábyrgð á notkun, birtingu eða öðrum verkum þeirra. Við hvetjum þig því til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þriðju aðila, þ. á m. vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað á okkar, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Google og Microsoft ásamt þeirri greiðsluþjónustu sem þú kýst að nota.

Öryggi í vinnslu persónuupplýsinga er Samkaupum mikilvægt og höfum við gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja vernd persónuupplýsinga þinna í takt við stefnu okkar um öryggi. Komi upp öryggisbrot er varðar þínar persónuupplýsingar, og teljist slíkt brot hafa í för með sér mikla áhættu fyrir frelsi og réttindi þín, munum við tilkynna þér um það án ótilhlýðilegrar tafar. Í þessum skilningi telst öryggisbrot atburður sem leiðir til þess að persónuupplýsingar þínar glatist eða eyðist, þær breytist, séu birtar eða óviðkomandi fái aðgang að þeim í leyfisleysi. Hér viljum við þó vekja athygli á því að þær persónuupplýsingar sem þú deilir með okkur á samfélagsmiðlum, t.d. Facebook síðu Samkaupa teljast opinberar upplýsingar og ekki á forræði fyrirtækisins þar sem Samkaup hafa enga stjórn á slíkum upplýsingum né bera ábyrgð á notkun eða birtingu þeirra. Standi vilji þinn ekki til þess að deila þeim upplýsingum með öðrum notendum eða veitanda samfélagsmiðlaþjónustunnar skaltu ekki deila upplýsingum á samfélagsmiðlum okkar. Við hvetjum þig einnig til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þessara aðila, Facebook, Google og Microsoft. Athugaðu að þegar þú ferð inn á Facebook síðu okkar, er mögulegt að Facebook komi fyrir vafrakökum í tæki þínu í greiningarskyni.

Með fyrirvara um þau skilyrði sem nánar er fjallað um í gildandi löggjöf um persónuvernd, þá átt þú rétt á að:

  • fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar fyrirtækið hefur skráð um þig og uppruna þeirra, sem og upplýsingar um hvernig unnið er með persónuupplýsingar um þig,
  • fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem eru unnar um þig, eða óska eftir að þær séu sendar til þriðja aðila,
  • persónuupplýsingar þínar séu uppfærðar og leiðréttar ef tilefni er til,
  • Samkaup eyði persónuupplýsingum þínum ef ekki er málefnaleg eða lagaleg skylda til að varðveita þær,
  • koma á framfæri andmælum ef þú vilt takmarka eða koma í veg fyrir að persónuupplýsingar þínar séu unnar,
  • afturkalla samþykki þitt um að Samkaup megi safna, skrá, vinna eða geyma persónuupplýsingar þínar, þegar vinnsla byggist á þeirri heimild.

Viljir þú nýta rétt þinn getur þú sent skriflega fyrirspurn á personuvernd@samkaup.is. Við óskum þess að fyrirspurninni fylgi útfyllt eyðublað sem finna má hér að neðan.

Við munum staðfesta móttöku á beiðninni og að jafnaði bregðast við beiðnum innan mánaðar frá móttöku. Verði ekki unnt að bregðast við innan mánaðar munum við tilkynna þér um töf á afgreiðslu innan mánaðar. Ekki er innheimt gjald þegar einstaklingar nýta rétt sinn í samræmi við ofangreint, nema í þeim tilvikum sem beiðni telst óhófleg eða augljóslega tilefnislaus.

Þú hefur einnig rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd sjáir þú ástæðu til þess. Upplýsingar um Persónuvernd má finna á heimasíðu þeirra, www.personuvernd.is.

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um málefni sem snúa að þínum persónuupplýsingum þá bendum við þér á að hafa samband við skrifstofu Samkaupa.

Samkaup hf.
Krossmóa 4
260 Reykjanesbær
421-5400
personuvernd@samkaup.is.

Persónuverndaryfirlýsing Samkaupa er endurskoðuð reglulega og uppfærð ef tilefni er til. Síðast var stefnan uppfærð þann 29.01.2019.

Beiðni vegna vinnslu persónuupplýsinga

Réttindi

Hver eftirtalinna réttinda óskar þú eftir að nýta þér?(Required)
Að því gefnu að upplýsingarnar séu þess eðlis að slíkt sé mögulegt

Beiðni

Til þess að aðstoða okkur við vinnslu beiðnarinnar biðjum við þig vinsamlegast að veita okkur eins ítarlegar upplýsingar um gögnin og þér er unnt. Dæmi: „Ég hef verið viðskiptavinur hjá fyrirtækinu síðan...“ . „Ég starfaði hjá fyrirtækinu á tímabilinu....“ „Ég sótti um starf hjá fyrirtækinu....“ „Ég hef nýtt mér eftirfarandi þjónustu....“ ofl.

Yfirlýsing

Ég staðfesti að ég er sá sem vísað er til í þessari beiðni og að allar upplýsingar settar fram eru réttar og hafa verið veittar Samkaupum í þeim tilgangi að bregðast við beiðni minni. Einnig staðfesti ég að upplýsingarnar sem safnast saman í tengslum við vinnslu þessarar beiðnar má afhenda til mín á því formi sem Samkaup telja mest viðeigandi (en þó alltaf rafrænt ef þess er kostur); Ég er meðvitaður um að það kann að vera ómögulegt að afhenda mér umbeðnar upplýsingar vegna þess að þær eru ekki lengur til og að allur eða hluti af beiðni minni kann að verða vísað frá ef ekki verður hægt að vinna hana sökum ákvæða í lögum. Einnig er ég meðvitaður um að Samkaup kann að taka hóflegt gjald fyrir vinnsluna ef hún reynist vera umfangsmikil og munu Samkaup upplýsa mig um þann kostnað áður en vinnslan fer fram.