Krambúðin opnar í Urriðaholti

Krambúð verður opnuð í Urriðaholtinu um miðjan september, í húsnæði þar sem áður var verslunin Nær. Verslunin verður græn sem þýðir m.a. að allir kælar verða lokaðir og keyrðir á rafmagni. Þá verður LED lýsing í allri búðinni, allt sorp flokkað og stafrænir verðmiðar verða í versluninni. Allt er þetta gert til þess að draga úr kolefnisspori verslunarinnar sem rímar vel við sjálfbærnistefnu Urriðaholts þar sem unnið er með sjálfbæra þróun, fjölbreytileika og virðingu fyrir umhverfi og samfélagi að leiðarljósi. Opnunartími verslunarinnar verður frá 8 á morgnanna til 23:30 á kvöldin.

„Við erum virkilega ánægð með að geta opnað þessa verslun í Urriðaholtinu enda er þetta spennandi hverfi í mikilli uppbyggingu. Okkur finnst þetta sérstaklega spennandi kostur þar sem hverfið er vistvottað og munum við leggja okkur fram við að taka þátt í þeirri vegferð með því að hafa verslunina eins sjálfbæra og hægt er. Við hlökkum til að taka þátt í að styrkja kjarnann á svæðinu með góðum nágrönnum og fjölbreyttri en persónulegri þjónustu til íbúa,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar – og mannauðssviðs Samkaupa.