Gunnar Egill nýr forstjóri Samkaupa

Gunnar Egill Sigurðsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Samkaupa og tekur við af Ómari Valdimarssyni sem hefur gegnt stöðunni undanfarin þrettán ár. Gunnar Egill hefur starfað sjá fyrirtækinu í tuttugu ár, nú síðast sem framkvæmdastjóri verslunarsviðs.

Forstjóraskiptin munu eiga sér stað um mánaðamótin mars – apríl, í kjölfar kynningar á ársuppgjöri síðasta árs sem var að sögn stjórnenda afar gott í ljósi áskoranna heimsfaraldursins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkaupum.

Ómar hefur starfað í 26 ár sem stjórnandi hjá Samkaupum, þar af sem forstjóri fyrirtækisins í þrettán ár eða frá árinu 2009. Hann hefur stýrt fyrirtækinu í gegnum mikla umbreytingu og vöxt, ekki síst með aukinni sókn á höfuðborgarsvæðinu.

Í dag eru verslanir fyrirtækisins á 65 stöðum á landinu og fyrirtækið veltir ríflega 40 milljörðum króna. Þá er framundan opnun 66. verslunarinnar, en í dag var undirritaður leigusamningur fyrir nýja Nettó verslun sem verður sú níunda á höfuðborgarsvæðinu.

Vill efla stafræna þróun
„Við viljum þakka Ómari fyrir einstakt framlag hans til vaxtar og viðgangs Samkaupa á síðustu árum. Það vita allir sem þekkja til hans starfa hversu stórt hlutverk hann hefur leikið í að búa til gott fyrirtæki og góðan vinnustað sem að stór hluti þjóðarinnar er verslar við, í hverri viku. Að sama skapi er ég feikilega ánægður með ráðningu Gunnars Egills, sem þekkir fyrirtækið afar vel og mun um leið koma með ferskar áherslur inn í þau stóru verkefni sem framundan eru hjá Samkaupum,“ Skúli Skúlason, stjórnarformaður Samkaupa.

Gunnar Egill Sigurðsson, verðandi forstjóri Samkaupa, segir spennandi vegferð framundan.

„Ég hlakka til að fylgja eftir stafrænni þróun og sjálfvirknivæðingu í þjónustu og starfsemi Samkaupa. Þá vil ég auka enn frekar áherslur okkar á samfélagslega ábyrgð og halda áfram að gera Samkaup að frábærum vinnustað,“ segir Gunnar Egill í tilkynningu.

Sjá frétt á Vísi.is