10-11
10-11 er þægindaverslun fyrir viðskiptavini sem vilja geta nálgast matvöru, drykki og aðrar nauðsynjavörur allan sólarhringinn. Verslanir 10–11 eru staðsettar á fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Þar er lögð áhersla á gott aðgengi, hraða þjónustu og fjölbreytt úrval fyrir fólk á ferðinni.