Samkaup hefur gert samning við KSK eignir ehf. um leigu á Vallholtsveg 8 á Húsavík. Gert er
ráð fyrir aĬendingu rýmisins á tímabilinu 2028 – 2030. Alls er um að ræða tæplega 1.400
fermetra rými miðsvæðis í bænum með ásætanlegt magn bílastæða og góðu aðgengi.
Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa:
„Við höfum um langt skeið leitað lausna á verslunarmálum á Húsavík. Núverandi húsnæði
Nettó verslunar er of lítið og þröngt og því er þessi lausn afar ánægjuleg. Nú tekur við frekari
hönnun og skipulag og innan fárra ára mun Nettó opna glæsilega verslun að Vallholtsvegi 8.“
Brynjar Steinarsson, framkvæmdarstjóri KSK eigna:
„Við erum mjög ánægð með hafa tryggt okkur þessa frábæra staðsetningu í miðbæ Húsavíkur
fyrir nýja verslunar- og þjónustumiðstöð. Nettó verður við Vallholtsveg 8 en Vallholtsvegur 10
mun einnig fá góða andlitslyingu þannig að báðar fasteignirnar myndi eina heild.
Framundan eru því spennandi ơmar í hönnun svæðisins sem og að taka samtal við heimamenn
og rekstraraðila sem kunna að hafa áhuga á að koma að verkefninu. Samhliða hafa áform
um byggingu nýs verslunarhúss í jaðri bæjarins verið lögð til hliðar.“