Verslanir
Samkaup rekur fjölbreytt net matvöru- og þægindaverslana um land allt, auk netverslunarinnar Heimkaupa. Viðskiptavinir geta valið á milli verslana sem starfa undir vörumerkjunum Nettó, SPAR, Prís, Kjörbúðin, Krambúðin og 10–11. Hvert vörumerki hefur sína sérstöðu, en sameiginlegt markmið þeirra er að bjóða fjölbreytt vöruúrval, góða þjónustu og samkeppnishæft verð. Samkaup hafa sterka stöðu bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni og leggur áherslu á að mæta ólíkum þörfum viðskiptavina um land allt.