Stjórn og framkvæmdastjórn
Upplýsingar um stjórn og framkvæmdastjórn Samkaupa er að finna hér að neðan:
Upplýsingar um stjórn og framkvæmdastjórn Samkaupa er að finna hér að neðan:
Sigríður Hrefna tók við starfi framkvæmdastjóra Samkaupa í október 2026. Hún var forstjóri Nóa Síríus frá 2023, en áður starfaði hún hjá Íslandsbanka sem framkvæmdastjóri einstaklingssviðs frá árinu 2017 og þar áður var hún framkvæmdastjóri smásölusviðs Olís. Sigríður Hrefna er lögfræðingur að mennt og með MBA-gráðu frá Copenhagen Business School.
Steinar hóf störf hjá Samkaupum 2026. Hann hefur tæplega 30 ára reynslu á sviði upplýsingatækni bæði hérlendis en áður leiddi hann upplýsingatæknisvið Bónus frá árinu 2003. Steinar býr yfir mikilli víðtækri reynslu af upplýsingatækni, verslunarlausnum og verkefnastjórnun.
Vífill hóf störf hjá Samkaupum 2025. Vífill hefur víðtæka reynslu af smásölumarkaði og var áður framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Orkunnar frá árinu 2001. Hann hefur lokið grunnnámi í verslunarstjórnun frá HR.
Sigríður hóf störf í júlí 2025. Hún var á undan því framkvæmdastjóri JAE hótela og stjórnarformaður Atlögu. Þar áður gegndi hún starfi framkvæmdastjóra vörustjórnar- og markaðssviðs BYKO ásamt því að starfa hjá Högum, m.a. sem rekstrarstjóri innkaupa- og markaðsmála og staðgengill forstjóra Hagkaups sem og fjármálastjóri Aðfanga. Sigríður er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, miniMBA gráðu í stafrænni verslun og markaðsmálum frá Akademias og er ICF vottaður stjórnendamarkþjálfi.
Kosin á aðalfundi 18. júlí 2025.
Inga Hrund tók sæti í stjórn Samkaupa í október 2026. Inga Hrund útskrifaðist með Cand.oecon-próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hún starfar sem fjármálastjóri Dranga ehf. Áður starfaði Inga Hrund sem fjármálastjóri Orkunnar á árunum 2022-2026.
Jón Ásgeir tók fyrst sæti í stjórn Samkaupa sem stjórnarmaður í júlí 2025. Jón Ásgeir er stofnandi Bónus, fjárfestir og ráðgjafi. Áður starfaði Jón sem forstjóri Haga. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnarstörfum en hann hefur sinnt stjórnarformennsku fyrir Haga og síðar Baug Group ásamt stjórnarstörfum fyrir Iceland Foods og Magazin du Nord, auk fjölda annarra innlendra félaga.
Magnús tók fyrst sæti í stjórn Samkaupa í júlí 2025. Magnús er með meistaragráðu í vélaverkfræði frá Virgina Tech og B.Sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann starfar sem fjármálastjóri SKEL fjárfestingafélags. Áður starfaði Magnús sem framkvæmdastjóri bankasviðs Kviku banka á árunum 2019-2022. Magnús hefur víðtæka reynslu af stjórnarstörfum.
Auður tók fyrst sæti í stjórn Samkaupa í júlí 2026. Auður er með Cand.Oecon próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, lauk námi í starfsmannastjórnun frá Háskóla Íslands og AMP stjórnendanámi frá IESE í Barcelona. Hún starfar sem forstjóri Dranga. Auður hefur víðtæka reynslu af stjórnarstörfum.